Leiðinlegt;
Blessunin hún Catherine Ringer var að deyja, hún kom ásamt vini sínum Fred eins og ferskur stormur inn í franska poppsenu um miðjan níunda áratuginn, undir nafninu Les Rita Mitsouko.
Ekki skemmdu myndböndin; sum gerð af Jean-Baptiste Mondino (sem gerðist síðar ljósmyndari/leikstjóri fyrir stærri fígúrur á borð við Madonnu) nú eða búningarnir sem mjög ungur J.P. Gaultier hannaði.
En Catherine Ringer hélt áfram að gera áhugaverða hluti allt fram í andlátið.